Láreist fjölbýlishús

Láreist fjölbýlishús

Hvað viltu láta gera? Það vantar fleiri íbúðir í Seljahverfið sem eru litlar 40 fm til 100 fm fyrir ungt fólki sem vill búa í hverfinu eða fyrir eldra fólk að minnka við sig. Getur verið staðsett þar sem skólagarðarnir hjá Jöklaborg eru. Þeir eru illa hirtir og ljótir og væri hægt að byggja ódýra og litlar íbúðir fyrir fyrstu íbúðakaup. Hvers vegna viltu láta gera það? Því það er lítið framboð að litlum íbúðum í Seljahverfinu

Points

Ja um að gera að nýta plássið og litlar fasteignir góður kostur

Endilega byggja meira í Seljahverfinu fyrir alla aldurshópa. Það er mikið af íbúum t.d. frumbyggjum sem sem að vilja minnka við sig og vera áfram í hverfinu.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information