Skálagerði

Skálagerði

Hvað viltu láta gera? Efst í Skálagerðinu er grasblettur og nokkur leiktæki fyrir börn. Ég mundi vilja grasblettinn burt og setja mjúkar mottur og fá fleiri leiktæki t.d. rólu, vegasalt og klifurkastala. Einnig er fyrir framan þennan blett bílastæði sem er oft eitt drullusvað og mundi ég vilja að það yrði malbikað. Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta svæði með leiktækjunum er orðið eitt stórt hundaklósett en þarna er stríður straumur fólks með hundana sína til að láta þá skíta og míga á sama svæði og börn eru að leik. Þetta er bara ógeðslegt. Bílastæðið sem er oft eitt drullusvað og mér finnst mikilvægt að malbika þess vegna.

Points

Sammála þetta verður að laga.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information