Battavöll við Húsaskóla

Battavöll við Húsaskóla

Hvað viltu láta gera? Byggja upp battavöll í stað malbikaðs fótboltavallar við Húsaskóla Hvers vegna viltu láta gera það? Núverandi völlur er hættulegur á veturna og battavöllur yrði betur nýttur. Að auki er búið að byggja upp battavelli við lang flesta ef ekki alla aðra skóla um allt land til þess að auka áhuga barna á heilbrigðri útivist. Ekki veitir af.

Points

Börnin í hverfinu hafa beðið eftir þessu árum saman og nú verður þetta að gerast. Það er mismunun að krakkarnir í Húsaskóla hafi ekki slíkan battavöll þegar það er reglan í öðrum skólum hverfisins.

Það er fyrir löngu kominn tími á battavöll. Það eru margir skór og margir boltarnir sem hafa eyðilagst á malbikinu. Fyrir utan meiri hættu á meiðslum í fótbolta á malbiki

árið 2012 var búið lofa Húsasskóla þessu en núna er 2019 ég held að sé lokins að taka skólalóðina í gegn og battavöllinn

Húsaskóli er eini skolinn í Grafarvogi sem er ekki með battavöll og það er nauðsynlegt fyrir börnin í hverfinu að fá einn á sína skólalóð. Skólalóðin var vissulega löguð seinasta sumar en það þarf að laga malbikaða svæðið á efri parti lóðarinnar og setja þar t.d. battavöll.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information