Snorrabraut - minni umferð og minni hraði

Snorrabraut - minni umferð og minni hraði

Hvað viltu láta gera? Fækka akreinum á Snorrabraut í eina í hvora átt, planta trjám á milli akreina og bæta við gönguljósum og 30 km. hámarkshraða bifreiða. Gera góða hjólastíga í báðar áttir Hvers vegna viltu láta gera það? Það minnkar umferð og fækkar slysum (sem hafa orðið mörg og slæm) og eykur lífsgæði og heilbrigði íbúa hverfisins og annarra gangandi vegfarenda. Fólk á leið í Sundhöllina, Austurbæjarskóla og á aðra staði í hverfinu er daglega í hættu vegna umferðarhraða og svifryksmengunar og á skilið mannvænlegra umhverfi.

Points

Sammála! Gerum Snorrabraut að búlevarði.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information