Gangbrautarljós á Reykjaveg

Gangbrautarljós á Reykjaveg

Hvað viltu láta gera? Setja gangbrautarljós á Reykjaveg. Þar er mikil umferð og börn á ferðinni allan daginn Hvers vegna viltu láta gera það? Til að reyna að auka öryggi barnanna í hverfinu sem þurfa að fara yfir Reykjaveginn til að sækja skóla, íþróttir, tónlistarnám og fleira. Aðrir njóta svo góðs af líka.

Points

Bý í hverfinu og það er svo mikil þörf fyrir þessi gönguljós þegar umferðin er mikil. Margir vegfarendur sem þurfa að ganga yfir. Reyndar fara flestir í kjölfarið beint yfir Kirkjuteig til að komast yfir í Laugarnesskóla þannig að þessi gatnamót eru erfið yfirferðar. Það þyrfti að staðsetja gönguljósin þannig að börn á leið í skóla komist örugglega yfir Reykjaveg án þess að verða fyrir bíl.

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information