Gera upp "Skrýtna róló" milli Búlands og Geitlands

Gera upp "Skrýtna róló" milli Búlands og Geitlands

Hvað viltu láta gera? Það mætti setja upp sambærilegan leikvöll og er á milli Hellulands - Kúrlands eða innst við Traðarland. Setja nýtt undirlag, setja upp ný leiktæki, setja upp klifurgrind og/eða kastala. Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta leiksvæði er í niðurníðslu, þrátt fyrir að það hafi verið málað yfir brotnu/biluðu leiktækin í fyrra af Rvík í fyrra þá eru leiktækin enn brotin og því hættuleg börnum. Það er mikill umgangur um þetta leiksvæði bæði af börnum og fullorðnum en er það ekki nýtt sem skyldi þar sem allur aðbúnaður á svæðinu ekki í nægjanlega góðu ástandi.

Points

Var þessi hugmynd ekki valin í fyrra og ætti að koma til framkvæmdar nú í sumar? :) Margrét Guðmundsdóttir sendi hugmyndina og hún fékk 53 atvkæði.

Þessi hugmynd hefur komið fram undanfarin ár. Það hefur verið kosið um hana en hún hefur ekki hlotið brautargegni en í ár er árið, nýr skrýtni róló árið 2020. Hérna er slóðin á þau verkefni sem verður farið í núna í ár https://reykjavik.is/framkvaemdasjain/hverfid-mitt-haaleiti-og-bustadir-framkvaemdir-2019

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information