Gera upp körfuboltavöllinn hjá "Skrýtna róló"

Gera upp körfuboltavöllinn hjá "Skrýtna róló"

Hvað viltu láta gera? Körfuboltavöllurinn er í algjörri niðurníðslu. Setja upp nýjan körfuboltavöll þarna með nýju undirlagi, tartani og nýjum körfum. Setja upp nýjan bekk og laga aðstöðu til þess að hægt sé að sitja þarna og njóta útsýnis og veðurs á góðum sumardögum. Hvers vegna viltu láta gera það? Þrátt fyrir að malbikið sér sprungið, hæðótt og með smá halla. Þrátt fyrir að körfurnar séu skakkar og sér í lagi önnur þeirra alveg ónýt, hin hefur komið upp á vorin og farið niður á haustin. Þá eru krakkar og unglingar stundum í fylgd með fullorðnum að koma þangað til þess að skjóta á körfurnar. Í Fossvogsdal eru nokkrir körfuboltavellir sem eru flestir í niðurníðslu og þetta þarf að laga. Tel að það sé gott að byrja þarna þar sem þessi virðist líta hvað verst út.

Points

Bæta aðstöðu til útiveru

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information