Bætt lýsing á öllum gönguleiðum í Seljadal

Bætt lýsing á öllum gönguleiðum í Seljadal

Hvað viltu láta gera? Lýsingu er ábótavant á öllum gönguleiðum í Seljadal, þó e.t.v. síst í kringum Ölduselsskóla. Töluvert langt er á milli ljósastaura og ef pera fer á einum ljósastaur er verulega dimmt þarna þegar dagsbirtu nýtur ekki við. Bætt lýsing er öryggisatriði og nýtist jafnt þeim sem ganga þarna eftir að rökkva tekur sem og börnum á leið í Ölduselsskóla áður en dagsbirtu nýtur við. Hvers vegna viltu láta gera það? Lýsing er öryggisatriði þegar gengið er um stíga borgarinnar eftir að rökkva tekur. Til þess að nýta Seljadal enn betur legg ég til að stórbæta lýsingu og einnig að viðhald á ljósastaurum verði stórbætt. Staurar eru vikum saman án ljóss þarna yfir vetrarmánuðina.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information