Endurnýja brú yfir Elliðaár við Breiðholtsbraut

Endurnýja brú yfir Elliðaár við Breiðholtsbraut

Hvað viltu láta gera? Endurnýja brú yfir Elliðaár við Breiðholtsbraut Hvers vegna viltu láta gera það? Tröppur gömlu búrarinnar eru stundum ófærar að vetri til, og brúin er allt að því ófær fólki á reiðhjólum með hjólavagna og er slysagildra, sérstaklega í hálku. Þetta hefur verið lengi til umræðu, en ekkert virðist þokast : sjá t.d. https://www.betrireykjavik.is/post/2679

Points

Ljómandi hugmynd. Held þetta sé nú þegar á dagskrá.

Þessi brú er bara slysagildra eins og hún er í dag.

Stórhættulegt að fara með barnavagn þarna yfir eins og brúin er núna!

Brúin ekki mjög traustvekjandi í núverandi ástandi.

Það er ekki hægt að fara gangandi frá Norðlingaholti í næstu búð (Bónus í Ögurhvarfi) með barnavagn án þess að leggja barnið í mikla hættu.

Nánast ekki hægt að komast þarna yfir með hjól með hjólavagni. Mikill farartálmi fyrir gangandi og hjólandi sérstaklega.

Mjög erfitt að fara yfir þessa brú með barnavagn og ómögulegt fyrir fólk í hjólastól.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information