Þjálfunarlaug við Vesturbæjarlaug

Þjálfunarlaug við Vesturbæjarlaug

Hvað viltu láta gera? Útbúa þjálfunarlaug við Vesturbæjarlaug, þar sem þeir sem eiga við stoðkerfisvandamál að stríða geta gert æfingar. Heppilegt hitastig í slíkri laug er kringum 34°C. Fyrirmyndir ættu að vera til á enduhæfingarstöðvum. Hvers vegna viltu láta gera það? Með tilkomu slíkra lauga (við allar sundlaugar) geta borgarar viðhaldið heilsu sinni sem dregur úr kostnaði samfélagsins við heilbrigðiskerfið. Æfingar í heitu vatni hafa reynst þeim sem berjast við stoðkerfisvandamál mjög gagnlegar. Með fjölgun eldri borgara verður þörfin enn meiri. Heitir pottar eru prýðilegir en þar er ómögulegt að gera æfingar.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information