Göngubrú yfir Bústaðaveg

Göngubrú yfir Bústaðaveg

Hvað viltu láta gera? Láta byggja göngubrú yfir Bústaðaveginn Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta er mikil umferðargata og fullt af börnum sem þurfa daglega að fara yfir götuna til að sækja íþróttastarf í Víkinni.

Points

brú eða göng, börn sem búa norðan megin við Bústaðaveg verða öruggari á leið sinni í og úr Víkinni

Til að komast i vikina

Aukið öryggi gangandi fólks.

Örugg leið fyrir fjölda barna sem fara yfir Bústaðaveg á leið í og úr Víkinni.

Göngubrýr draga úr öryggi fyrir alla óvarða vegfarendur nema þá sem nýta sér þær. Það væri nær að breyta hönnun götunnar þannig að hún leyfi ekki hraðakstur. Markmiðið er væntanlega að gera götuna öruggari fyrir börnin, en göngubrú er því miður ekki svarið.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information