Skúlptúr á horn Seljabrautar og Engjasel við torgið.

Skúlptúr á horn Seljabrautar og Engjasel við torgið.

Hvað viltu láta gera? Setja skúlptúr við torgið á horni Seljabrautar og Engjasels t.d. eftir Hafstein Sigurðsson listamann Seljahverfis Hvers vegna viltu láta gera það? Fegra innkomu í Seljahverfið

Points

Áttu við Hallstein Sigurðsson?

Listamaðurinn heitir Hallsteinn Sigurðsson

Það væri tilvalið að setja upp lítinn skúlptúragarð á þetta auða svæði meðfram Seljabrautinni neðst. M.a. verk eftir Hallstein Sigurðsson.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information