Sundlaug í hverfi 105

Sundlaug í hverfi 105

Hvað viltu láta gera? Engin almenningssundlaug er í hverfi 105 ( Hlíðar, Holt, Norðurmýri og Suðurhlíðar) Fjölmargir skólar eru í hverfinu en engin sundlaug. Gífurlega margir íbúar eru í hverfinu sem hefðu gaman að því að hafa hverfissundlaug. Hvers vegna viltu láta gera það? Aukin lífsgæði fyrir íbúa, skólakrakkar gætu gengið í sund en ekki þurft að fara í rútum eins og í dag. Einnig myndi sundlaug auka heilbrigði íbúanna í hverfinu.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information