Hjólastígur norðan við Stekkjarbakka.

Hjólastígur norðan við Stekkjarbakka.

Hvað viltu láta gera? Ég vil láta leggja hjólastíg norðan við Stekkjarbakka frá kanínuhúsi að gamla Vatnsveituveginum meðfram brún Elliðarárdal. Hvers vegna viltu láta gera það? Þannig verður hægt að hjóla frá göngubrúnni yfir Reykjanesbraut upp í efra Breiðholt eða Árbæ án þess að þurfa að fara brattar brekkur ofan í Elliðarárdal.

Points

Ef af yrði væri komin leið þar sem hægt væri að hjóla alla leið frá Skerjafirði langleiðina upp í Norðlingaholt án þess að þurfa nokkurn tíman að fara yfir umferðargötu. Núna neyðist maður eiginlega til þes að fara Traðalandið og hjóla yfir Stjörnugróf á frekar leiðinlegu blindhorni.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information