Bæta öryggi barna og íbúa við Hraunberg og Hólaberg

Bæta öryggi barna og íbúa við Hraunberg og Hólaberg

Hvað viltu láta gera? Setja upp sjáanlegar sebrabrautir í Hraunberginu og Hólaberginu Hvers vegna viltu láta gera það? Við Hraunbergið er leikskóli, frístundaheimili, skátaheimili, Heilsugæslan, smíðadeild FB og fleira. það eru engar sjáanlegar gangbrautir /sebrabrautir við þessar götur þó að börnin í hverfinu og íbúar fara þarna yfir götuna og verða að treysta á að bílarnir stoppi fyrir þeim. Það eru strætóhraðahindranir við Heilsugæsluna sem bílarnar keyra meðfram hraðahindrunum af því það er hægt. Þrátt fyrir að hámark sé 30 km þá er það sjaldan virt.

Points

Þetta er mér mikið hjartans mál að bæta umferðaröryggi við Hraunbergi þar sem ég hef því miður orðið vitni að því að hraðakstur hefur aukist í götunni og svo eru blind horn þarna og sérstaklega hjá leikskólanum og frístundaheimilinu þeir sem koma þarna akandi sjá ekki alltaf börnin eða foreldrana með börnin sín koma frá þessum stöðum.

Ég styð þessa hugmynd. Mikið um hraðakstur. Hættulegt fyrir öll börnin sem sækja mikið í þetta svæði.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information