Gróðursetning lágrunnagróðurs við Sæbrautina

Gróðursetning lágrunnagróðurs við Sæbrautina

Hvað viltu láta gera? Að Reykjavíkurborg planti trjám og runnum á allar helstu umferðareyjar, og þá sérstaklega á lengjurnar sem er stundum að finna á milli akbrauta, eins og tilfellið er td. við Sæbraut. Ekki þurfa tréin eða runnarnir að vera háir og ekki þarf mikið viðhald, enda bara fallegt ef tréin fá að vaxa frjáls. Hvers vegna viltu láta gera það? Magn mengunar og svifryks er orðið afar hátt hér í borg. Á svokölluðum "gráum dögum" geta sumir varla farið úr húsi og eru rúmliggjandi svo dögum skiptir, oft með óútskýrðar “flensur” sem virðast aldrei ætla að fara, eða verki sem venjulegar verkjameðferðir ná varla að halda niðri. Við erum öll sammála um að ástandið er orðið slæmt, og á bara eftir að versna. Tré og gróður er eitt áhrifamesta úrræðið gegn umhverfiságangi og hugsast getur. Ekki bara bindur tré CO2 og aðrar gróðurhúsalofttegundir, heldur breytir þeim í súrefni. Tré eru einnig falleg og auka því framleiðslu endorfins, hjálpa til við að stilla af rasegulsvið líkamans (auðvelda jarðtengingu) og lifa flest lengur en við mannfólkið. “Trees are 'our most powerful weapon in the fight against climate change', “ https://www.independent.co.uk/environment/forests-climate-change-co2-greenhouse-gases-trillion-trees-global-warming-a8782071.html Þessi leið leysir auðvitað ekki umhverfisvandann, en er eitt hænuskref í átt að betri loftgæðum. Til lengri tíma litið tel ég hana mun hagkvæmari og endingarmeiri en að rykbinda allar götur Reykjavíkur með vélum nokkrum sinnum á ári. Eins minnkar þessi leið þau áhrif sem verður á hagkerfið og þann vinnumissi sem verður yfir “gráa daga”, sem og álag á heilbrigðiskerfið. Enginn og ekkert getur gert allt, en allir geta gert eitthvað.

Points

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information