Grill og leiktæki í garðinum fyrir aftan Miðbæ

Grill og leiktæki í garðinum fyrir aftan Miðbæ

Hvað viltu láta gera? Steypa grill og fá skemmtileg leiktæki (t.d. vindbelg og ungbarnarólu) í garðinn fyrir aftan Miðbæ - sem vantar nú alveg eitthvað fínt nafn í leiðinni. Ég sé fyrir mér svipað svæði og sem er mjög vinsælt til að halda barnaafmæli á Klambratúni, með steyptum grillum, bekkjum og borðum. Stutt í búðina fyrir pyslur og ís í eftirmat :) Hvers vegna viltu láta gera það? Í fyrra komu þarna fín líkamræktartæki, en það vantar enn meira líf þarna og frábært ef hægt væri að hafa útisvæði sem er fyrir afmæli fyrir börnin til að hittast á.

Points

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Sammála, mætti bæta við fleiri barnatækjum og kannski bekk til að sitja á.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information