Gróður í hverfinu

Gróður í hverfinu

Hvað viltu láta gera? Taka til hendinni hvað varðar gróður hverfisins sem er margur hver orðinn ansi lúinn. Það mætti fella dauð tré, grisja í hálf-dauðum trjám og runnum og planta nýjum gróðri eftir því sem við á. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er svo ansi dapurt að ganga um hverfið og horfa á dauðan eða hálf-dauðan og illa hirtan gróður. Hverfið myndi verða fallegra við smá andlitslyftingu og vonandi myndi fólk líka ganga betur um fallegt umhverfi.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni hefur verið komið áfram sem ábendingu, eftir eðli hugmyndar, ekki er talin þörf á að setja slíkt verkefni í kosningu. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information