Öryggi við útkeyrslu.

Öryggi við útkeyrslu.

Hvað viltu láta gera? Setja steina á hornin á grasflötinn hjá útkeyrslunum Bakkaseli og Brekkuseli. Eins og búið er að gera við ysta part Engjaselsins. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er því miður allt of algengt að bílar leggi á þessi horn og hindra útsýnið þegar keyrt er út úr götunum. Þetta eykur verulega hættuna á árekstrum.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Setja í leiðinni biðskyldumerki á Brekkusel, Dalsel og Bakkasel og gera Engjasel að aðalbraut.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information