Hringtorg á gatnamótum Fellsmúla og Síðumúla

Hringtorg á gatnamótum Fellsmúla og Síðumúla

Hvað viltu láta gera? Setja upp fallegt hringtorg á gatnamótum Fellsmúla og Síðumúla Hvers vegna viltu láta gera það? Þessi gatnamót eru hættuleg því bílar sem ætla sér td. að beygja upp Fellsmúla frá Síðumúla sjá ekki alltaf bílana sem keyra upp Fellsmúla fyrir öðrum bílum. Það myndast líka mikil teppa þarna á háannatímum sem nær inn Síðumúla. Ofan á þetta er erfitt að komast út af Góða Hirðis planinu. Fallegt hringtorg með runnum myndi stórbæta umferðina og í leiðinni fegra umhverfið.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information