Spennandi leiktæki í Suðurhlíðarnar

Spennandi leiktæki í Suðurhlíðarnar

Hvað viltu láta gera? Þau örfáu leiktæki sem eru á opnum svæðum í Suðurhlíðunum eru orðin lúin og lítið spennandi. Það þarf að endurnýja eða halda þeim við sem fyrir eru. En mikilvægast er að bæta við spennandi nýjum leiktækjum fyrir breiðan aldurshóp barna í hverfinu. Hvers vegna viltu láta gera það? Leiksvæðin eru svo fátækleg og lítið spennandi þegar aðeins eru tvær rólur. Við viljum að börnin okkar leiki sér úti og þá þarf svæðið að vera aðlaðandi og bjóða uppá leik og hreyfingu.

Points

Hjartanlega sammála. Ekki nóg með að kominn er tími á endurnýjun leiktækja þá er þarna einnig tækifæri til að betrumbæta svæðið sjálft. Heilmiklir möguleikar í boði þarna.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information