Betri leikvöll á svæði við Friggjarbrunn/Sjafnarbrunn

Betri leikvöll á svæði við Friggjarbrunn/Sjafnarbrunn

Hvað viltu láta gera? Á svæðinu er leikvöllur sem mætti gjarnan “hressa” uppá og betrum bæta. Laga þau leiktæki sem þegar eru fyrir og setja sérstakt undirlag (gúmmíteppi?) þannig að yngsta kynslóðin gæti einnig notið sín. Eins að setja fleiri leiktæki sem henta breiðari aldurshóp. T.d eins og rugguhest og ungbarnarólu. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að koma til móts við yngsta hóp íbúa í nærliggjandi umhverfi í kringum Sjafnar- og Friggjarbrunn. Umhverfið verður snyrtilegra og fallegra á að líta. Einnig geta leiksvæði sem þessi efld tengsl á milli foreldra í hverfinu sem hafa þá stað til að hittast með börnin sín.

Points

Mjög sámmála þessu.

Það vantar róló með tækjum sem henta yngstu börnunum í úlfarsárdal með ungbarnarólu og rennibraut.

Það vantar leiktæki fyrir yngstu börnin

Þetta leiksvæði má alveg endurbæta. Orðinn gamall og þreyttur

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information