Grænahlíð

Grænahlíð

Hvað viltu láta gera? Ég vil að Grænahlíðin, sem er barnmörg gata, verði þrengd og settar upp hraðahindranir og merkt sem 30 km gata. Það er ein hraðahindrun í götunni en hún er við miðju götunar og er ekki að þjóna sínum tilgangi. Það er gríðarlega mikið af bílum sem lagt er í götunni og það skapar mikla hættu þegar börnin skjótast á milli bílanna og yfir götuna. Hvers vegna viltu láta gera það? Auka öryggi gangandi vegfaranda.

Points

Ég styð þetta 100% fólk keyrir of hratt í gegnum götuna og oft er það að keyra í gegnum götuna til að stytta sér leið þegar það er mikil umferð í Hamrahlíð.

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information