Klifurveggur fyrir kisur

Klifurveggur fyrir kisur

Hvað viltu láta gera? Klifurvegg fyrir kisur Hvers vegna viltu láta gera það? Svo kisur geti klifrað. Það er öllum köttum hollt að hreyfa sig og sérstaklega til að styrkja liðþófa í loppunum. Hægt er að komast hjá veikindum og hreyfingarleysi katta á efri árum (12 ára og eldri) með því að halda loppunum frískum fram eftir aldri. Fátt styrkir loppurnar betur en klifur. Þess vegna er stungið upp á að Reykjavíkurborg hlutist til um að reisa klifurvegg eða grind fyrir ketti á öllum aldri í Vesturbænum, en kattbúar borgarhlutans eru margir komnir af léttasta skeiði.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna eða valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information