Endurnýjun-almenningsgarður milli Kambsvegar og Austurbrúnar

Endurnýjun-almenningsgarður milli Kambsvegar og Austurbrúnar

Hvað viltu láta gera? Garðurinn er á besta stað í hverfinu en er því miður hvorki fugl né fiskur. Ekkert hefur verið gert fyrir garðinn í áraraðir. Hér er kjörið tækifæri til að vera með skemmtilegan almenningsgarð í miðju hverfi. Hægt væri að bæta við bekkjum og borðum, leiktækjum, bæta lýsingu og hirða um gróður. Það væri líka hægt að vera með útikennslusvæði fyrir leikskólana eða skólana. Það er allavega synd ef ekkert er gert. Hvers vegna viltu láta gera það? Þarna er svæði sem greinilega hefur gleymst í áranna rás. Þetta er í raun rándýr lóð inni í einu vinsælasta hverfi borgarinnar sem ekkert er nýtt. Það er leiðinlegt þegar svæði sem þetta er ekkert nýtt. Garðurinn er aðallega nýttur til að stytta sér leið milli gatnanna tveggja, en það er ekki göngustígur í gegn svo grasið er niðurtraðkað. Það er komin tíma til að framkvæma.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Leyndur fjársjóður í Laugardalnum. Fyrirfinnst vart skjólsælli blettur þótt víða væri leitað á hinu vindasama suðvestur horni Íslands. Styð þetta framtak!

Góð hugmynd semég styð heilshugar!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information