Setja þarf upp ruslafötu við strætóskýlið svo þeir sem þar bíða geti hent matar- og drykkjarumbúðum sómasamlega.
Strætóskýlið er mikið notað af nemendum í nágrenninu t.d. úr FÁ og milli 10-11 í Lágmúla og ísbúðarinnar og bakarísins í Miðbæ og að Olís eru engar ruslafötur. Nokkuð mikið er af rusli við götuna allan ársins hring sem er líti á annars fallegri götu þar sem umgengni er heilt yfir þokkaleg. Ruslatunna við þetta strætóskýli gæti minnkað ruslið á svæðinu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation