Endurnýjun körfuboltavallar í Fossvogi

Endurnýjun körfuboltavallar í Fossvogi

Lagt er til að gamall körfuboltavöllur á opnu svæði milli Snælands og Marklands verði endurnýjaður. Sömuleiðis er lagt til að sandkassi, sem staðsettur er við annan enda vallarins, verði fjarlægður. Sandkassanum er ekki sinnt og því virkar því í raun sem nokkurs konar kattaklósett og skapar þannig í raun hættulegan og mögulega heilsuspillandi stað sem börn (sérstaklega þau minnstu) sækja fast í. Völlurinn sjálfur er orðinn mjög lasinn, malbikið er mishæðótt auk þess sem það hallar.

Points

Eins væri mikilvægt að setja upp háa girðingu umhverfis körfuboltavöllinn. Það skapast oft hætta þegar leikmenn missa bolta yfir umferðagötuna sem er næst vellinum, þegar þeir hlaupa í hvatvísi á eftir boltanum án þess að ugga að sér...

Sandkassar, sem ekki er viðhaldið, eiga ekki heima á opnum svæðum í borginni. Körfuboltavöllurinn er, þrátt fyrir slappt ástand, þó nokkuð mikið notaður. Nýr völlur, mögulega með tveimur körfum yrði vafalaust vinsæll.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information