Laga göngustíg/tröppur milli Rauðás og Reykás

Laga göngustíg/tröppur milli Rauðás og Reykás

Hvað viltu láta gera? Leggja göngustíg við hliðina tröppum þar sem krakkar hjóla hvort sem er, það þarf rétt að taka frá grindverkinu og leggja smá part af göngustíg í tenginguna á milli Reykás-Rauðás. Þetta er eini staðurinn í Selás þar sem erfitt er að fara með barnavagn/kerru/reiðhjól og þetta er mjög lítið sem þarf að gera til að bæta þetta. Hvers vegna viltu láta gera það? Fólk er að ganga þarna daglega með kerrur, barnavagna eða á reiðhjóli. Það er holræsaop þarna í miðjum tröppunum sem gerir þetta mjög svo klunnalegt. Svo virðist sem hjólreiðafólk fullorðnir sem börn fari hvort sem er bara á milli grindverks og trappa og það er bara moldardrulla þar. Það væri rosalega fín og einföld lausn að setja bara smá auka spöl af göngustíg í halla. Það gæti orðið dáldið bratt og ég veit ekki hvort þetta sé inná lóð Rauðás 12-16. En þetta verður klárlega bót á þessu furðulega horni og fannst mér vert að benda á þetta.

Points

þá verður kannski hægt að moka snjóinn af göngustíg á milli Rauðaás og Reykás. Engin öruggleið út úr Rauðás í dag á göngustíg þegar snjóar - ekkert mokað

Þessar tröppur eru búnar að vera. Vatn hefur flætt þarna meðfram og skemt bæði þær og gróður. Það verður örugginu til bóta ef þetta verður lagað.

Frábært að láta laga þetta - erfitt að fara t.d. með kerrur þarna og mindi fegra svæðið.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information