Beygjuakrein til hægri frá Selásbraut út á Breiðholtsbraut

Beygjuakrein til hægri frá Selásbraut út á Breiðholtsbraut

Hvað viltu láta gera? Á gatnamótum við Norðlingaholt eru beygjuakreinar úr öllum áttum nema þegar beygt er til hægri frá Selásbraut út á Breiðholtsbraut. Öll umferð út úr Seláshverfinu er því stopp á rauðu ljósi, þótt það sé enginn umferð. Lagt er til að bætt verði við beygjuakrein til hægri út á Breiðholtsbraut eins og alls staðar annars staðar á umræddum gatnamótum svo að leiðin út úr hverfinu sé greið. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að greiða fyrir umferð út úr Seláshverfinu.

Points

Þetta er góð hugmynd og yrði þörf framkvæmd. Svona beygjuakrein myndi greiða mjög fyrir umferð á álagstímum, ekki síst á morgnanna og minnka slysahættu.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information