Frístundasvæði fyrir gæludýraeigendur

Frístundasvæði fyrir gæludýraeigendur

Hvað viltu láta gera? Byggja upp fallegt útivistarsvæði á Geirsnefi fyrir menn og dýr með tengdri þjónustu. Hvers vegna viltu láta gera það? Skapa aðlaðandi vettvang fyrir frístundaiðkun þar sem blandað er saman gæludýraútiveru, aðgengi að þjónustu fyrir hundaeigendur og útivist. Til staðar væri kaffihús, þrautabrautir með leiðbeiningum, aðstaða fyrir námskeið, walker þjónusta, skokkbrautir með lausagöngu, sundbraut og huggulegt sameiginlegt útivistarsvæði fyrir menn og dýr.

Points

Með betri líðan dýra og dýra eigenda

Frábær hugmynd. Í Reykjavík og nágrenni eru þúsundir hundaeigenda og þörf á að bæta þjónustu við þennan stóra hóp.

Frábær hugmynd

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information