Sprengihljóðklefi

Sprengihljóðklefi

Hvað viltu láta gera? Byggja svartan kassa, staðsettan miðsvæðis, sem er læst að utan þegar þú ert kominn inn. Inni í kassanum er algert myrkur, og ekki hægt að opna hurðina þar til 'session' er lokið. Eftir skamma stund hefjast mjög hávær hljóð úr hátalaravegg sem staðsettur er inni í kassanum, en sést ekki vegna myrkurs. Hljóðin hefjast sem aftur á bak öskur eða grátur, en breytast skyndilega í 125 db sprengingar, sem koma á um 20 sek fresti, en þó með mismiklu millibili, til að koma 'neytandanum' sem mest á óvart og valda honum sem mestum kvíða. Þegar 'session' er lokið, eftir um 4 mínútur, opnast lásinn á hurð kassans og 'neytandinn' getur sloppið út. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að valda eins miklu áfalli á sem skemmstum tíma

Points

Eyðileggur heyrn, hættulegt fyrir fólk að lokast inni.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni hefur verið komið áfram sem ábendingu, eftir eðli hugmyndar, ekki er talin þörf á að setja slíkt verkefni í kosningu. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information