Hverfiskaffihús

Hverfiskaffihús

Hvað viltu láta gera? Að fá notalegt hverfiskaffihús (t.d í Hraunbæjar verslunarkjarnann), sem býður upp á morgunmat, hádegismat, kvöldmat, bjór, vín og gott kaffi í Árbæinn, svipað og Kaffi Vest í Vesturbænum eða Kaffi Laugalækur í Laugardalnum. Hvers vegna viltu láta gera það? Skemmtilegt hverfiskaffihús sem býður upp á mat, vín og góða stemmningu myndi gera mjög mikið fyrir Árbæinn. Það væri svo gaman að geta sótt kaffihús, eins og Kaffi Vest og Kaffi Laugalæk, í næsta nágrenni.

Points

Já takk! Það væri svo huggulegt að setjast niður og fá sér te/kaffi/bjór eftir langan göngutúr um Elliðaárdalinn.😁

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna eða valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information