Bæta gönguleið fram hjá Traðarkoti

Bæta gönguleið fram hjá Traðarkoti

Hvað viltu láta gera? Gera skýra gangbraut yfir inn og útkeyrsluna við Traðarkot og gera kantinn þægilegri yfirferðar. Hvers vegna viltu láta gera það? Í dag er leiðin sérstaklega óhentug þar sem það er smá eyja við húsið sem hægt er að fara yfir en ef þú ert í hjólastól eða með kerru/barnavagn þá er eitthvað fyrirbæri tengt bílastæðahúsinu í gangveginum. Þess vegnar er oft hentugra að fara út á götu þar sem þú þarft að klífa smá kannt og vona að æstir ökumenn á leið í bílastæðahúsið keyri ekki á þig.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information