Aukið aðgengi að Öskjuhlíð

Aukið aðgengi að Öskjuhlíð

Hvað viltu láta gera? Auðvelda aðgengi að Öskjuhlíðinni frá Flugvallarvegi og miðbæjaráttinni með hjólastíg og tröppum. Stækka rampinn uppá planið hjá Mjölni og auka bílastæði. Hugsanlega leggja stíg frá bílastæðunum við Perluna, sem standa meira og minna ónotuð, að Mjölni. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að auðvelda aðgengi að Öskjuhlíðinni og Mjölni og nýta Öskjuhlíðina betur en nú er gert fyrir borgarbúa.

Points

Öskjuhlíðin er náttúruperla sem að mætti nýta mun betur en er gert í dag. Aukið aðgengi og styrkt starfsemi fyrirtækja og íþróttafélaga kanski sérstaklega þar í kring gefur tækifæri á að nýta svæðið til iðkunnar. Einnig gefur þetta fólki sem það vill að verja meiri tíma í þessum skógi okkar aukin tækifæri til þess að sækja einhverskonar tómstundastarf þangað.

Þarna gæti myndast virkilega skemmtilegt útisvæði. Öskjuhlíðin er vannýtt og hefur slæmt orðspor á sér en með smá breytingum, viðhaldi og aðhaldi væri hægt að gera mun meira fyrir Öskjuhlíðina. Það er ekki sjálfgefið að vera með fallega nátturu í miðri höfuðborg.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information