Leikvöllur á milli Lækjaráss og Eyktaráss

Leikvöllur á milli Lækjaráss og Eyktaráss

Hvað viltu láta gera? Laga aðkomu að leikvelli milli Lækjaráss og Eyktaráss, frá göngustígnum hjá körfuboltavellinum Hvers vegna viltu láta gera það? Aðkoman að leikvellinum (þegar komið er ofan við hann frá göngustígnum við körfuboltavöllinn) virðist vera hægt að hlaupa niður grasbrekkuna og beint að rólunum. Nema neðst í brekkunni er steinahleðsla sem sést ekki ofanfrá af göngustígnum og ég hef lent í því oft að börnin mín hlaupa í átt að rólunum en áður en þau koma að steinahleðslunni næ ég að stoppa þau, en það hefur komið fyrir að þau hafa hrasað niður. Ekki mikið fall en samt fall. Væri frábært ef það væri hægt að breyta þessu.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information