Hvirfisbylur

Hvirfisbylur

Hvað viltu láta gera? Setja upp þetta skemmtilega listaverk/sköpun sem fær fólk til að búa til hvirfisbil í röri. Minnir á íslenska veðráttu. Hvers vegna viltu láta gera það? Skemmtilegt, óvenjulegt og einfalt tæki sem gæti orðið mjög vinsælt. Sá þetta nýlega í Búdapest þar sem það er gríðarlega vinsælt og er nokkuð viss um að það gæti orðið það hér líka.

Points

Sniðugt :)

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information