Höggmynd af Leifi Hreggviðssyni við Dómkirkjuna

Höggmynd af Leifi Hreggviðssyni við Dómkirkjuna

Hvað viltu láta gera? Setja upp höggmynd af Leifi Hreggviðssyni við Dómkirkjuna í Reykjavík. Hvers vegna viltu láta gera það? Þrátt fyrir að hafa ekki fundið land hefur Leifur þessi undanfarin ár fundið sjálfan sig og er það engu minna afrek en að ganga á land í Norður-Ameríku forðum daga, líkt og nafni hans Eiríksson gerði. Þess má einnig geta að Leifur er fæddur í Bandaríkjum Norður-Ameríku og tengingin við nafna hans Eiríksson því sterk. Höggmyndin gæti kallast fallega á við styttuna við Hallgrímskirkju og er sérstaklega áhugavert í því samhengi að lengi framan af var Leifur Hreggviðsson kallaður "Leifur óheppni" - og svipar honum því mjög til Leifs heppna að mörgu leyti.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019. Styttur af mannfólki í almenningsrými eru að jafnaði valin að undangenginni samkeppni á meðal listamanna og eru þeim þá gefnar frjálsar hendur hvað varðar útfærslu hugmynda. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október -14. nóvember nk. á www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information