Gangstétt á Grunnslóð

Gangstétt á Grunnslóð

Hvað viltu láta gera? Klára að helluleggja gangstétt á Grunnslóð (vestan megin akbrautar) Hvers vegna viltu láta gera það? Gangandi vegfarendur eiga oft leið þarna um þessa litlu götu til að sækja þjónustu á Fiskislóð og Grandagarði. Ljóst er að flestir vilja halda sig þeim megin sem er styst og þægilegast að fara og sleppa því að fara yfir götuna til að ganga á gangstéttinni hinum megin þar sem þarf að huga að akandi umferð þar sem þar eru tvær útkeyrslur af bílastæðum. Útkoman er niðurtroðið gras og moldarsvað sem er dapurt á að líta og verður að drullu í bleytu og snjó. Það kemur þó ekki í veg fyrir að fólk gangi þarna á grasinu.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna eða valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information