Vegg listaverk

Vegg listaverk

Hvað viltu láta gera? Ég og Karl Kristján sem hefur skreytt veggi fyrir Reykjavíkurborg langar að mála litlu svæðin í borginni. Við gætum farið af stað og fundið slík svæði eða verið í samstarfi við ykkur. Við tengjumst bæði Hlutverkasetri starfsendurhæfingu. Hvers vegna viltu láta gera það? Karl fékk nýverið úthlutað vegg og þegar ég sá hvað hann hafði gert, langar mig að vera með. Veggjakrot er hvimleitt og það væri frábært að geta gert eitthvað í því

Points

Það er einfalt fyrir okkur að taka að okkur að gera falleg málverk á veggi sem myndi veita gleði og ánægju að sjá og undirstrika fjölbreytileika Reykjavíkur. Við erum með ýmsa góða staði í huga og teljum að list ætti að vera aðgengileg fyrir borgarbúa. Við teljum að þetta sé ein af mörgum leiðum til að fegra hana fyrir listunnendur, sem eru margir. Þótt að alltaf sé persónulegt hvað fólk hefur gaman af þá er þetta alþýðulist og ber að fá að njóta sín betur. Endilega leyfið okkur að gera þetta.

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Hugmynd vegglistar okkar Kalla. Gaman að taka þátt í að fegra Reykjavík. Kíkið á mig @hiddenmaria

Frábært framtak mæli eindregið með því að gera borgina fallergri með líflegum fallegum myndum á staði sem oft eru útkrotaðir í svörtum stöfum af fólki sem langar að geta spreyjað en bara getur það ekki mun sniðugra að fá frábæran listamann eins og Karl Kristján til að spreyja flottar myndir 😍

Frabaer hugmynd.. god leid fyrir folk til ad tengja vid umhverfi sitt

Við teljum verkin okkar vera málið fyrir Reykjavíkurbúa og fleiri , kjósið okkur !

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information